Lag Barnamenningarhátíðar í Reykjavík 2019. Lag: Jón Jónsson Texti: Bragi Valdimar Skúlason Útsetning og upptaka: Pálmi Ásgeirsson Hljóðblöndun og hljóðjöfnun: Sæþór Kristjánsson Myndbandsupptaka: Hafsteinn Vilhelmsson Textamyndband: Jakob Þórhallsson Lagið varð til í góðu samstarfi við börn í 4. bekk í grunnskólum borgarinnar. Börnin svöruðu spurningum um hverjir draumar þeirra væru, fyrir þau sjálf, aðra og fyrir allan heiminn. Verkefnið tengist innleiðingu nýrrar menntastefnu Reykjavíkur en yfirskrift hennar er: „Látum draumana rætast“. Texti: Mig dreymir um að verða kafari, geimfari, trommari, amma, Mig dreymir um að verða Listakona með stall Mig langar svo að verða arkitekt, jútúber, grínisti, lögga Mig langar svo að verða Rosa frægur karl Ég væri stundum til í að vera meiri prakkari ofurlítið fyndnari og pínu hugrakkari. Óska þess að draumar fengju í lífi okkar ögn stærri sess. En enginn veit hvað verður næst — ég veit það eitt, að draumar geta ræst. Óóóóóó Draumar geta ræst Óóóó Mig dreymir um að eignast tígrisdýr, kengúru, systkini, apa, Mig dreymir um að eignast pöndu og hákarl Mig langar svo að fá mér bókasafn, risahús, nefhring og tattú, Mig langar svo að fá mér Gimsteina og skart Ég vildi að það væri engin stríðni og ekkert stríð Allir væru vinir, massasáttir alla tíð Óska þess að draumar fengju í lífi okkar — ögn stærri sess. Enginn veit hvað verður næst — ég veit það eitt, að draumar geta ræst. Óóóóóó Draumar geta ræst Óóóó Rétt upp hönd ef þú vilt skoða heiminn Ennþá hærr’ ef þú vilt skoða geiminn Rétt upp hönd ef þú ert stundum feimin/n Hey ho Hey hey ho Rétt upp hönd ef þú vilt eiga heima Í heimi þar sem er í lag’ að dreyma Rétt upp hönd ef þú trúir því að draumar geti ræst Óska þess að draumar fengju í lífi okkar — ögn stærri sess. Enginn veit hvað verður næst — ég veit það eitt, að draumar geta ræst. Óóóóóó Draumar geta ræst Óóóó Já, draumar geta ræst

Jón Jónssonbragi valdimarbarnamenningbarnamenningarhátíð